<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

August 30, 2006
Fyrir þá sem komast inn á þessa síðu...

Ég kemst svo sjaldan inn á þessa síðu, veit ekki hvaða bull er í gangi, en eg er flutt...hingað!


Posted at 30.8.06 by Hrefna
Komdu með þína skoðun  

August 21, 2006
Paradís á jörð á hjara veraldar...

Jæja, er ekki réttast að skrifa niður ferðasögu okkar um Langanesið...

Við ákváðum að skella okkur á Langanesið vegna þess hve Halla langaði til þess að skoða "rætur" sínar, en hún Dúlla er fædd og uppalin á Skálum á Langanesinu.  Aldrei þessu vant mundum við eftir myndavélinni og var henni óspart beint að hinu og þessu sem okkur þótti áhugavert og sniðugt.  

 

Við byrjuðum ferðalagið í 18 gráðu hita, og lögðum af stað þegar við vorum búin að sækja Birki á leikskólann. Við leigðum fellihýsi og ákváðum að fara yfir Melrakkasléttuna, því Öxnafjallsheiðin er víst ekkert spes yfirferðar með vagn í eftirdragi. Við stoppuðum í Húsavík og svo rétt fyrir utan Ásbyrgi, en þá var orðin ansi grunsamleg lykt í bílnum, auk þess sem hann Baldur okkar þurfti að létta á sér. Við fengum okkur því nesti þegar búið var að skipta, en þegar við komum inn í bílinn var lyktin enn sterkari svo það var farið að leita. Jú, jú, Baldur þurfti endilega að hafa stigið í skítinn sinn og klínt honum aðeins í fötin sín. Drengurinn var því berháttaður og fötin vandlega sett í vel einangraðan poka. Þeir voru því aðeins á stuttbuxunum yngri bræðurnir í bílnum, sem kom ekki að sök vegna hita. Næsta stopp var í Raufarhöfn, þar stoppuðum við í Urð sem ALLIR VERÐA AÐ SKOÐA einhverntíma á lífsleiðinni. Þetta er yndislegt kaupfélag, svona eins og þau voru öll einhverntíma. Úir og grúir af öllu hingað og þangað. En við keyptum okkur bara ís og nutum hans í sólinni. Tæpum 6 tímum eftir að ferðin hófst vorum við komin á áfangastað, vagninn var hífður upp og svo var flatmagað í sólinni. Nokkru eftir að við komum á tjaldsvæðið tjölduðu tveir gaurar við hliðina á okkur og Baldur þurfti að sjálfsögðu að spjalla við þá. Þeir voru hljómsveitin misskildir og er annar þeirra úr Eyjum, sonur Stellu Hauks, Guðmundur. Þeir ætluðu að spila á Eyrinni, the local pub in town, svo við hjónakornin ákváðum að kíkja á þá þegar liðið væri sofnað, sem við svo gerðum og skemmtum okkur bara nokkuð vel. Næsta dag tókum við hins vegar daginn snemma, úr því að allt liðið var vaknað fyrir 7, við ætluðum að vísu að bíða eftir að bensínsjoppan opnaði, til að ná í spúna, en þegar ekkert var farið að bóla á neinum klukkan 9, þá ákváðum við bara að nota það sem til var og lögðum af stað út Langanesið.

Hér á eftir koma nokkrar myndir úr ferðalaginu út á Langanesið, við gersamlega misstum okkur með myndavélina, það var svo fallegt þarna.

Posted at 21.8.06 by Hrefna
Komdu með þína skoðun  

May 1, 2006
sælir góðu vinir.....

Jæja, ef ekki tími til að blogga núna, þá hvenær...?

Við fórum á litlu hryllingsbúðina á fimmdudaginn, með Baldur og Bergvin og við skemmtum okkur öll ofsalega vel...en Baldur var samt mjög, mjög leiður þegar hún Ausa át Auði.  Hann var kominn upp í fangið á mér og grúfði sig mjög fast.  Við keyptum okkur svo diskinn, og Bergvin er búinn að hlusta  á hann út í eitt, hann þurfti náttúrulega að læra textann við flest lögin fyrir uppfærsluna þeirra í vetur, svo nú gaular hann með, sem mest hann má.

Leikritið var meiriháttar, og salurinn kom okkur mikið á óvart, hann er svo lítill.  En hann er ofboðslega vinalegur og kósý, og leikmunirnir og ljósasjóið var svakalega flott.  Við Halli "festumst" í sinnhvorum leikaranum og vorum allan tíman að hugsa hvar við höfðum séð þau áður: Halli með Baldur, en sá sem lék hann var í Orvilles auglýsingunni (þarna í bíóinu) og ég var mikið að fylgjast með einni bakraddarsöngkonunni, en það var hún Ardís Ólöf úr ædolinu.

 

Daginn eftir var afmælið mitt, og  þá fórum við Halli út að borða á Friðrik V.  Ég hafði hins vegar fyrr um daginn fengið óhemjumargar afmælisgjafir, en flestar þeirra voru frá Baldri.  Það var svo svakalega gott veður og drengurnn var úti allan daginn að tína köngla, svo nú á ég fimm dollur fullar af könglum sem ég fék í afmælisgjöf. 

Jamm, eins og ég sagði þá bauð Halli mér út að borða um kvöldið, og það var svakalega glæsilegt í alla staði.  við komum um 9 og vorum farin rétt yfri miðnætti og vorum eiginlega að borða allan tímann...!  Maturinn kom í smá skömmtum og kokkurinn mætti til okkar í hvert einasta skipti til þess að segja okkur frá matnum og hvaðan hráefnið væri komið!  Þetta er sko staður sem ég mæli með og nautakjötið....mmmmm....ég hef ekki smakkað neitt betra.....(humarsúpan var líka góð, Halli var búinn að tala svo mikið um hana, en Dúlla gerir þær samt betri....)

 

Á laugardaginn fór Baldur óvænt á júdómót, við höfðum enga hugmynd, og kom heim með gullpening... alveg meiriháttar...og tímabilinu var slúttað hjá þeim með næturgistingu í Þelamörk og var hann alsæll, eins og gefur að skilja. 

Bergvin gaf svo bróður sínum allt playmo-ið með mikilli viðhöfn á Sunnudaginn.  Þeir sem þekkja til vita að þetta er ekkert smá-playmó, þetta eru fjórir kassar, þannig að við höfum ekkert séð til Baldurs síðan....

 

Fyrsta prófið er hjá mér á morgun, Halli er búinn með sitt fyrsta, og svo förum við sitt á hvað í próf til 12. mai, en þá erum við búinn, fyrir utan eitt próf sem Halli ætlar að taka í Júní. 

Beddi er að koma að sækja Birkir í dag og ætlar hann að vera hjá ömmu sinni og afa, og Siggu frænku þar til 12.  Hann er nefnilega búinn að taka upp á þeim ósið að vakna um 6 alla morgna og það er ekki að vekja neina sérstaka lukku hjá foreldrunum, sem taka góðan nætursvefn mjög alvarlega, sérstaklega í próftörn!

Jæja, ég ætla að knúsa hann svolítið áður en við sækjum Bedda núna kl. 9!

Bið að heilsa öllum, og sjáumst hress!


Posted at 1.5.06 by Hrefna
(1) hafa sagt sína skoðun  

March 26, 2006
Ný helgi!

Jamm, enn einu sinni er ný helgi að verða búin og alltaf er nóg að gera hjá okkur.  Það eru að koma próf, og við erum á fullu að undirbúa okkur undir það.  Við ætlum til Eyja um næstu helgi til að vera í tveimur fermingarveislum, en svo ætlar Halli að fara aftur til Akureyrar á Mánudaginn, þannig að þeir sem vilja hitta hann, er bent á að eyða engum tíma, heldur hafa samband við hann strax á föstudaginn eftir fjögur!!  En við hin ætlum að njóta Eyjaloftsins og fjölskyldnanna í rúmar tvær vikur og hafa það gott!  (eða þannig....læra, læra, læra...)

Veit ekki hvað á að segja meira, það er allt við það sama, lífið er í mjög föstum skorðum hjá okkur.  Bergvin er farinn að læra á gítar.  Birkir er að verða mjög frekur...og Baldur er bara Baldur!

Við lærum út í það endanlega og hápunktur vikunnar er að borða ís yfir latarbæjarpartíi á Föstudögum!  -Já og horfum á Boston Legal!  Rosa stuð...en það leiðist engum allavega á þessum bæ.

Það snjóar einhvern helling hérna og snjóþoturnar voru notaðar í fyrsta skipti í dag.  Jæja, það er alltaf einhver tilbreyting!

Jæja, ætli næsta blogg verði bara ekki í maí?  Sjáumst þá!!


Posted at 26.3.06 by Hrefna
(1) hafa sagt sína skoðun  

February 25, 2006
Helgin okkar

það er nú búið að vera frekar rólegt hjá okkur, við tókum helgina snemma og fórum á árshátíðarsýningu 1-4. bekkjar í Brekkuskóla, þar sem Baldur fór á kostum í söng og flautuleik.  Í gærmorgun fór svo Halli í vísindarferð á Kárahnjúka og vísiteraði svo aðra staði á Austfjörðunum, svo það var brunað á Subway og keyptur bátur fyrir Bergvin, og svo líka pizza hjá Jóni Spretti líka.  Þess má kannski geta að Halli er ekki mikið fyrir þessa staði. 

Bræður fóru svo á æfingu í morgun og svo var Júdóæfing hjá Baldri, hann fór með Björgvin, og hefur eiginlega ekkert sést heima í dag, því hann ætlaði að sofa hjá honum í nótt.  Gífurlega spennandi.  Það er búið að vera svaka rólegt á meðan, hann er svoddan skellibjalla hann Baldur minn!

Bergvin fór í "sund"afmæli í dag, mæting í afmælið var niðr´í sundlaug og síðan var haldið í bollupartí heim til afmælisbarnsins.  Honum fannst þetta svaka gaman.  Á eftir var haldið í fótbolta niðr´á gervigrasvelli, þar sem hann hitti Dag frænda, en hann er í 10. bekk.  Þeir kepptu saman, og rúlluðu hinum upp, að eigin sögn.

Við Birkir fórum í góðan hjólatúr og enduðum á róluvelli, og skemmtum okkur þar alveg konunglega.

Birkir var að koma hérna fram töltandi, eitt sólskinsbros, því hann náði því að klifra yfirí okkar rúm og svo þaðan niður.  Hann var ekki sáttur við hana mömmu sína, þegar hún setti hann aftur í rúmið sitt, eftir allt þetta erfiði

.

Posted at 25.2.06 by Hrefna
(4) hafa sagt sína skoðun  

February 23, 2006
myndir

jæja, hérna koma nokkrar myndir Hvernig lýst ykkur á?

Posted at 23.2.06 by Hrefna
(2) hafa sagt sína skoðun  

February 16, 2006
Af Bergvin

  Frumburðurinn okkar var að taka þátt í uppfærslu leikfélags 5-7 bekkjar Brekkuskóla Akureyrar á söngleiknum Litlu hryllingsbúðinni.  Frumsýningin, sem og reyndar síðasta sýningin þeirra var sl. fimmtudag, sem jafnframt var árshátíðin þeirra.  Þetta var glæsisýning í alla staði og fengum við að sjá nokkra mjög tilþrifamikla leikara að störfum.  Okkar maður var í drengjakór í tveimur lögum.  Þau lög voru búin að hljóma hér heima nokkuð oft, svo vægt sé tekið til orða!  Annars var þetta mjög skemmtileg tilbreyting fyrir þau, og fór mikill tími hjá þeim í æfingar, og ég held að þeim hafi verið slétt sama, þó svo að þau hafi ekki fengið að skrifa eða reikna í nokkra daga. 

  Annars tóku sig upp gömul íþróttameiðsli hjá honum (síðan í október) og er hann nú frá æfingum og öðrum íþróttum tímabundið. Svo gaman finnst honum að handboltanum, að hann gat eiginlega ekki sleppt æfingu.  -Ætlaði bara rétt að kíkja á strákana, en endaði með því að æfa vinstri hendina bara í staðinn. 

  Svo er hann líka byrjaður að æfa skák, finnst það rosa gaman, en það eru strákar allt upp í 10. bekk að æfa með honum líka, svo hann er nú ekki beinlínis meðal þeirra bestu, en honum finnst allavega gaman á þessum æfingum, svo það er nú fyrir öllu.  - Hann kom heim um daginn, sagðist hafa lent í verlaunasæti!  -Glæsilegt, sögðum við.  -Já, við vorum bara 5 á æfingu, svo það er nú kannski ekki alveg að marka!

  Hann er líka farinn að mæta á TTT (tíu til tólf) með einhverjum strákum úr bekknum og svo er spilakvöld í skólanum hans strax á eftir, þannig að það er að færast smá líf í félagslífið hans Bergvins míns og við erum alveg svakalega glöð með það!!!

Bæðevei, við erum núna stoltir eigendur Land cruser bifreiðar! Við erum svaka happí, enda kom brjáluð hríð úti og við komumst sko léttilega í skólann! jeihei!

 


Posted at 16.2.06 by Hrefna
(2) hafa sagt sína skoðun  

February 13, 2006
Pæling dagsins!

Eins og flestir í kring um okkur vita, er töluvert matarvesen á drengjunum okkar.  Bergvin og Birkir borða og borða, þeir kunna sér einfaldlega ekki hóf.  Og það er í lagi.  Baldur borðar illa, og stundum sama og ekki neitt.  Og það er slæmt.  Hann er samt búinn að skána mikið eftir að Halli tók upp á því að láta hann fara að sofa ef hann klárar ekki það sem hann fær sér á diskinn, en það er annað mál.  Fyrir jólin var hann mjög slæmur í maganum, og því var farið með hann til barnalæknis (hennar Eygló Ara, sem er búin að reynast okkur svo vel) og þá kemur í ljós, eftir ýmsar blóðprufur og annars konar tékk, að hann er svona stífaður.  Og hann fékk þvílíkan fyrirlestur um að hann verði nú að vera duglegri að borða fjölbreyttari mat (mjög mikill mjólkurmatur á þeim tíma, sko) en allt lagaðist þetta með skítameðalinu hennar Siggu! Jæja, en við ætlum ekki að gefast upp, og förum með hann til háls-nef-og eyrnalækns til að athuga hvort kirtlarnir séu svona stórir, og því kúgist hann við sósum og mæjonesi og öllu svoleiðis.  En nei, ekkert fann læknirinn nema mikinn merg (og nú gengur drengurinn um og segist bara vera með mikinn merg, ef það þarf að segja honum hlutina þrisvar, fjórum sinnum).  í síðustu viku þurfti svo Birkir að fara í blóðprufu og tékk hjá Eygló, og þá spurði hún um Baldur, hvernig hann hefði það.  -Æ, þessi drengur, hann borðar bara ekki neitt, við höfum svo miklar áhyggjur af honum, hann var ekkert með vítamínskort eða neitt, er það?  -Nei, nei, sagði Eygló, þegar hún var búin að kíkja á tölvuna, -Hvað segirðu borðar hann ekki neitt?  -Nei, en hann er samt voða duglegur að borða þurrt kjöt, grænmeti og ávexti.  Eygló horfði á mig og spurði: Og hvert er þá vandamálið???

Tja það er spurning...landsátak í gangi til þess að fá krakka til þess að borða meira grænmeti og ávexti og hreyfa sig meira, og ég sendi krakkann til læknis vegna þess að hann gerir það!!!

Bæðevei, hann er byrjaður að æfa blak, hann Baldur, vegna þess að kærastan hans í öðrum bekk (hann er nefnilega líka skotinn í einni í sínum bekk) er að æfa blak!


Posted at 13.2.06 by Hrefna
(4) hafa sagt sína skoðun  

January 24, 2006
svona af hinu og þessu....

....T.d. af Bergvin => hann fór á handboltamót um helgina, það var þrusustuð; amma Dísa og afi Baui, Sigga, Bryndís og Bergþór fóru öll að sjá hann keppa og hitta hann.  Það var það gaman hjá honum að hann mátti ekkert vera að því að spjalla, og ekki hringdi hann, svo það hefur verið nokkuð mikið fjör hjá honum.  EN, hann gleymdi úlpunni sinni þarna, það er búið að finna hana, og nú þarf ég að blikka frænkur mínar yndislegu í Rvk til þess að ná í hana fyrir mig og senda.  (Blikk, Blikk, hringi í ykkur á morgun....)

Af Birki => Dagmamman hans, hún María, fór í helgarferð til London, frá Fimmtudegi til Þriðjudags (kom sem sagt heim í dag).  Henni fannst eitthvað ómögulegt að "ræna" frá okkur þessum dögum í skólanum, svo hún bauð mömmu sína fram sem barnapíu á meðan.  Þar sem var ekki mikill skóli fyrir helgi vorum við bara heima með hann til skiptis, en á Mán, og Þri var verklegir tímar, með mætingarskyldu, svo við urðum að þyggja hjálpina.  María sagðist ekki bjóða þetta nema því hann væri svo þægilegur.  "Maður fer bara með hann inn í eldhús, ef hann verður eitthvað pirraður"  Jæja, þetta gekk bara svona þrusuvel, að vísu hefur hann séð hana áður, en hún átti ekki til eitt einasta orð yfir því að það væri hægt að henda honum svona til og frá, og honum var bara nokk sama.  Mjög ánægður með allt dótið og ótakmarkaðan aðgang að eldhúsinu!

Af Baldri => ha, ha, ég geymi hann alltaf þar til síðast, því það er svo endalaust hægt að skrifa um vitleysuna sem vellur upp úr honum!
   Við fórum í bíltúr núna um daginn, öll fjölskyldan, og þeir bræður fara að tala um kindur og lömb.  Hvernig lömbin verða til og svo framvegins.  Við Halli vorum ekki spurð að því hvernig lömbin verða til, eins og venjuleg börn myndu kannski spurja, NEI! Hvernig varð fyrsta lambið til! Ómægad, hvernig svarar maður þessu? Jú, Halli svaraði: Hrefna, það er verið að tala við þig!
....hmmm....eh, ætli þetta sé ekki svona svipað og með eggið og hænuna, hvort heldur þú að hafi komið á undan?
Baldur: Eggið. 
Ég:  Og hvaðan kom þá eggið?
Baldur: Nú úr hænunni auðvitað!
Ég: Ætli sé þá bara ekki sama sagan með lambið (bara nokkuð ánægð með þessi endalok)
Baldur (eftir laaaangan umhugsun):  HA! kom þá lambið virkilega úr hænunni?????

Baldur hélt upp á afmælið sitt (eina ferðina enn) um helgina og bauð öllum bekknum.  Sem betur fer voru þó nokkur afföll, og um helmingur bekksins mætti og það var bara mjög gaman, og Baldur var bara mjög sáttur. 
Á þrettándanum hélt hann upp á afmælið sitt í Eyjum, við buðum 5 eða 6 strákum, og ég held að lætin hafi verið þrefalt meir þá en um helgina.  Þetta voru mjög aktrífir strákar, sem létu sko allt flakka.  Einn þeirra tilkynnti okkur meira að segja það að mamma hans væri eiginlega alltaf full og pabbi hans líka!  Jamm!  Andlitið okkar eiginlega bara datt af áður en við fórum að veltast um af hlátri.  Þessir krakkar!  Mikið er ég glöð að hafa ekki fengið að vita allt sem Baldur lét flakka um okkur á leikskólanum....

Við Halli skelltum okkur svo á ball um helgina með Jónu,sem kom í mat til okkar, og Herði.  Virkilega gaman!

Jæja, ég verð að halda áfram að læra!  Kærar kveðjur að norðan...


Posted at 24.1.06 by Hrefna
(4) hafa sagt sína skoðun  

January 20, 2006
Bergvin að keppa í handbolta

jæja, komiði nú öll sæl og blessuð.....

Leikirnir hjá Bergvin byrja á morgun í Víkinni og leikjaplanið er hér.  Vonandi er einhver sem sér sér (asnalega orðað en þið skiljið...) fært um að mæta í Víkina og kíkja á drenginn...


Posted at 20.1.06 by Hrefna
(4) hafa sagt sína skoðun  

Next Page